Flugferðir til Spánar með flugfélaginu Primera Air sem keyptar eru gegnum ferðaskrifstofuna Heimsferðir fást á sumum dagsetningum á lægra verði en Primera Air býður sjálft á vef sínum.

Verðsamanburður nauðsynlegur þó um eitt og sama fyrirtæki sé að ræða
Þetta er ekki nýtt fyrirbæri en góð vísa er jú sjaldan of oft kveðin og sjálfsagt að ítreka fyrir fólk að gera verðsamanburð hér sem annars staðar jafnvel þó Heimsferðir sé hluti af sömu samsteypu og Primera Air.
Ferðaskrifstofan býður í viðbót við skipulagðar ferðir einnig upp á flug eitt og sér og skoðun sýnir að í allnokkrum tilfellum kostar minna að kaupa flug til Spánar þar en á vef Primera Air. Munurinn getur verið talsverður. Við finnum til dæmis flug út til Alicante með Heimsferðum þann 21. júní fyrir 29.990 meðan sama flug á vef Primera Air kostar 34.900 krónur. Það er fimm þúsund króna munur á sama flugi aðra leið sem er þrátt fyrir allt nokkur peningur.*
Algilt er þetta þó ekki. Á vef Primera Air má finna flug aðra leið til Alicante þann 12. maí fyrir 19.990 krónur en sama flug á vef Heimsferða kostar manninn 29.900 krónur. Það eru litlar tíu þúsund krónur aðra leiðina og munar sennilega alla um minna.
Slíkur fargjaldamunur er ekki einskorðaður við flug til Alicante heldur og til Barcelóna og Tenerife. Þjóðráð því að ganga ekki út frá því sem vísu að sama verð sé í boði hjá Heimsferðum og Primera Air.
* Leit á vefum Primera Air og Heimsferða kl. 11:40 þann 9. apríl 2015.







