Aftur og ítrekað hefur hin síðari ár verið sýnt fram á takmarkanir allra þeirra öryggisráðstafana sem gripið hefur verið til í kjölfar hryðjuverkaárásanna í New York árið 2001. Einu gildir hvar gripið er niður eins og sést kannski best á þeim aðferðum sem sérþjálfaðir starfsmenn á bandarískum flugvöllum tileinka sér til að vinsa úr fanatíkus frá farþegum.

Hér leynast ýmsir líklegir hryðjuverkamenn ef marka má lista TSA.

Hér leynast ýmsir líklegir hryðjuverkamenn ef marka má lista TSA.

Vefmiðillinn Firstlook komst yfir hluta þess lista sem flugvallarstarfsfólk á öllum bandarískum flugvöllum þarf að læra til að átta sig á hvaða fólk er líklegra til að fremja hryðjuverk en aðrir. Eins og með margt annað hjá Kananum er þessi listi í kjánalegri kantinum svo ekki sé meira sagt.

♥  Fólk sem geispar óeðlilega mikið

♥  Fólk sem kvartar mikið yfir allri öryggisgæslunni

♥  Fólk sem ræskir sig umfram það sem eðlilegt getur talist

♥  Mjög starandi augu

♥  Undarlegur klæðnaður

♥  Fólk sem blístrar í öryggisröðinni

♥  Fólk sem horfir að mestu niður

♥  Fólk sem snyrtir sig sýknt og heilagt

♥  Mikið og endurtekið lófanudd

Burtséð frá þeirri staðreynd að fólkið sem starfar við það eitt að vinsa úr hugsanlega hryðjuverkamenn er venjulegt flugvallarstarfsfólk á lágmarkslaunum er margt þarna sem orkar tvímælis.

Fólk sem ræskir sig mikið gæti þjáðst af bakflæði sem er mjög algengur sjúkdómur. Fólk klæðir sig misjafnlega og fatasmekkur getur á engan hátt gefið fyrirheit um illan ásetning. Starandi augu og geispar geta átt við um þreytt fólk eða syfjað. Það er auðvelt að verða þreytt í löngum öryggisröðum á stærri flugvöllum og mörg áætlunarflug fara mjög snemma morguns. Og svo framvegis og svo framvegis.

Billjarðar króna í öryggisgæslu og þetta eru reglurnar fimmtán árum síðar!!! Galið.