Ekkert lítið hefur verið fjallað um netaðgengi á hótelum undanfarin misseri enda sýna kannanir ítrekað að net og það frítt er langefst á óskalistum hótelgesta. Að sama skapi hafa hótel mörg verið þver að bjóða slíkt sem sjálfsagða þjónustu. En nú er annað og öllu verra vandamál komið upp.

Netkerfi margra hótela fjarri því eins örugg og af er látið

Netkerfi margra hótela fjarri því eins örugg og af er látið

Í ljós hefur komið að eitt af vinsælli netkerfum fyrir hótel í Bandaríkjunum og Evrópu er með gapandi öryggisgalla og tiltölulega auðvelt fyrir færa hakkara að komast inn á kerfið og þannig um leið fá aðgang að upplýsingum þeirra sem netkerfið nota og ekki síður bókunarkerfi hótelanna sjálfra. Vandamálið tengist beini frá fyrirtækinu ANTlabs að því er fram kemur á Wired sem greindi frá vandamálinu fyrst miðla.

Á mannamáli þýðir þetta að mögulegt er og hefur verið fyrir óprúttna að komast að öllu því sem hótelgestir hafa á tölvum sínum eða símum í hvert sinn sem tengst er hótelneti. Þar sem það gera flestir er um hreina gullnámu að ræða fyrir hakkara sem margir hafa lifibrauð af því að komast yfir slíkar upplýsingar og annaðhvort selja áfram eða jafnvel beita fórnarlömb þvingunum með viðkvæmum upplýsingum.

Sem sagt ágætt að ganga úr skugga um að hótelið sem þú dvelur á sé með sitt á tæru áður en þú loggar þig inn á kerfið.