Flugfélagið Wow Air birtir ekki lengur aukagjald sem kallað er bókunargjald á upphafssíðu bókunarvef fyrirtækisins. Fara þarf áfram í bókun til að fá það fram.

Bókunarvél Wow Air. Þar sést ekki sérstakt bókunargjald lengur og verðið á fluginu því ekki 16.026 krónur. Skjáskot

Bókunarvél Wow Air. Þar sést ekki sérstakt bókunargjald lengur og verðið á fluginu því ekki 16.026 krónur. Skjáskot

Hingað til hefur það verið raunin. Eins og sést á meðfylgjandi mynd að verð á flugi sést í boxinu og í hliðarglugga hefur hingað til bæst við 999 króna bókunargjald sem allir þurfa að greiða. En ekki lengur.

Wow Air hefur haft fyrir að færa bókunargjaldið og það birtist ekki sem kostnaður fyrr en farið er áfram í bókun.

Nú hefur enginn úr ritstjórn lagt lögfræði fyrir sig en við sjáum ekki betur en þetta geti verið á skjön við lög landsins.

„Á sölustað, þ.m.t. við fjarsölu, er skylt að gefa upp verð fyrir þjónustu með endanlegu söluverði í íslenskum krónum. Endanlegt söluverð er verð með virðisaukaskatti og öðrum opinberum gjöldum. Ef annar kostnaður bætist við söluverðið þarf að taka það sérstaklega fram.“

Þetta síðastnefnda er hvergi tekið fram lengur á bókunarvél Wow Air. Þetta er líka á skjön við það sem hefur verið að gerast í Evrópu þar sem fullt verð fyrir vöru skal birtast strax. Fólk á ekki að þurfa að hefja bókun á flugi til að fá fram lokaverð á flugi.

Æði léleg framkoma Skúla Mogensen og félaga við neytendur í landinu.