Við höfum gegnum tíðina bent áhugasömum á þá leið að nota íbúðaleiguna Airbnb sé ætlunin að njóta sólar og sælu í Alicante eða Torrevieja yfir sumartímann. En hvað kostar leiga á íbúð yfir háannatímann og hvað er í boði?

Hægt er að gista hér í júlímánuði fyrir átján þúsund krónur á sólarhring. Mynd Airbnb
Það eru margar ástæður fyrir að velja íbúðir í stað heilu sumarhúsanna. Kostnaður vegur þar þyngst því einbýli er auðvitað mun dýrari pakki en íbúð. En fleira kemur til. Til dæmis að sumir þurfa ekkert einbýli með fjórum herbergjum og þremur klósettum. Mörgum þykir yndislegra að láta litla íbúð duga enda þær oftar miðsvæðis og því styttra á ströndina eða í menningu og bari og veitingastaði.
Alls eru rúmlega 400 íbúðir og hús til leigu í júlímánuði í Torrevieja og næsta nágrenni hjá Airbnb þegar þetta er skrifað. Gróflega virðast litlar íbúðir miðsvæðis leigjast út per sólarhring frá sjö til tíu þúsund krónum. Sem þýðir þá 115 til 120 þúsund krónur fyrir tveggja vikna dvöl. Svipaðar íbúðir á betri stöðum við ströndina eða með útsýni fara upp í 13 til 16 þúsund krónur per sólarhring. Tveggja vikna pakki við þær aðstæður kostar því gróflega tæpar 200 þúsund krónur sé miðað við júlímánuð.
Ef við förum aðeins ofar í skalann og leitum að parhúsum hækkar prísinn í 15 til 20 þúsund á sólarhring. Hér þó hægt að vera fleiri en tvö saman með góðu móti yfirleitt og því hægt að lækka kostnað á mann. Þá er hægt að finna smærri parhús niður í tíu þúsund á nótt en slík eru þá aðeins fjarri strönd.
Lítil sumarhús/villur eru líka í boði og töluvert framboð. Kostnaður per nótt rokkar frá 14 þúsund krónur og upp í 25 þúsund fyrir þær best búnu og næst strönd. Ekki er þó endilega mikið dýrara að leigja alvöru villur með garði og jafnvel sundlaug heldur. Við fundum nokkrar slíkar í júlí frá fimmtán þúsund krónum og í þeim geta allt að sex gestum dvalið í góðu yfirlæti.
Um að gera að skoða úrvalið hjá Airbnb og bera saman verð og gæði. Reynslan af leiguvefnum vinsæla er góð og tryggingar ekki síðri en hjá virtum hefðbundnum sumarhúsaleigum.
Svo er óhætt að benda á bókunarvef Fararheill líka. Þar finnast nefninlega ekki bara hótel heldur og villur og íbúðir. Um að gera að skoða sem mest.







