Allt að helmingsmunur er á verði flugmiða aðra leiðina milli Keflavíkur og Manchester í Englandi samkvæmt úttekt Fararheill.

Margir Íslendingar hafa verið að uppgötva að verslun í Manchester er almennt ódýrari en í London. Mynd Robert Wade
Furðu margir átta sig ekki á að Icelandair er ekki eina flugfélagið sem flýgur áætlunarflug til þessarar vinsælu bresku borgar sem þekktust er auðvitað fyrir fótbolta. Það gerir easyJet líka og skoðun Fararheill á fargjöldum aðra leiðina þangað næstu fjóra mánuðina leiða í ljós að breska flugfélagið er að bjóða mun betur.
Til að hafa samanburð eins réttan og mögulegt er bættum við tösku við hjá easyJet en það kostar aukalega og jafnframt bættum við ofan á sérstöku kreditkortagjaldi sem greiða þarf ef pantað er erlendis frá. Þrátt fyrir þessi aukagjöld tekst breska flugfélaginu að bjóða okkur mun lægra fargjald til Manchester en Icelandair ef frá er talinn júlímánuður þegar íslenska flugfélagið snarar okkur yfir hafið tæpum þrjú hundruð krónum ódýrara.
* Lægsta verð aðra leiðina næstu fjóra mánuði. Leitað samtímis á bókunarvélum beggja flugfélaga kl. 09.40 laugardaginn 21. febrúar 2015. Allir skattar og gjöld meðtalin plús ein taska með hjá easyJet en slík fylgir með hjá Icelandair. Fargjöld easyJet færð yfir í krónur miðað við miðgengi föstudags.







