Svo virðist sem hin erlenda ferðaskrifstofa Nazar hafi lært meira af innlendum ferðaskrifstofum en setja hámarksálagningu á ferðir. Þeirra lægsta tilboðsverð finnst ekki í öllum tilfellum.

Allra besta verð Nazar finnst svo ekki við leit. Skjáskot

Allra besta verð Nazar finnst svo ekki við leit. Skjáskot

Eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti sýnir ferðaskrifstofan sitt lægsta tilboðsverð í hverjum mánuði fyrir sig. Það til eftirbreytni og sparar hugsanlegum viðskiptavinum tíma. Þó aðeins ef eitthvað er að marka uppgefið verð. Sem reynist ekki alveg raunin.

Engin ferð í tilboðspakka Nazar í júní finnst á 94.999 krónur á vef ferðaskrifstofunnar. Lægsta verð sem við finnum við leit er 99.499 eða tæpum fimm þúsund krónum hærra verð en auglýst er.

Lægsta auglýsta verð í júlí og ágúst stemmir hins vegar. Svo er reyndar annað sem má læra af þessu í fljótu bragði. Það er verðmunurinn á ferð í júní annars vegar og ágúst hins vegar. Ágúst vitaskuld miklu vinsælli sumarleyfismánuður en júní og það gildir um sumarferðir hvert sem er í Evrópu. Fjögurra manna fjölskylda sparar sér 120 þúsund krónur ef flogið er út í júní en ekki í ágúst en gist á sama eða sams konar hóteli. Það munar um það.

PS: Ef þú hefur hug á Tyrklandsferð í júní er málið að taka skjáskot af vef Nazar. Með það að vopni getur þú krafist þess að fá ferð á 94.999 en ekki 99.499 lögum samkvæmt.