Allt of fáir fara til Stokkhólms og fólk ætti að gera gangskör í heimsókn þangað samkvæmt stórri grein ferðavefsins túrista í Fréttatímanum sem telur að rétta verði hlut sænsku höfuðborgarinnar gagnvart Kaupmannahöfn.

Ljúf á sumrin en handónýt að vetrarlagi. Stokkhólmur í sumarskrúða.

Ljúf á sumrin en handónýt að vetrarlagi. Stokkhólmur í sumarskrúða.

Stokkhólmur er góðra gjalda verð og álitlegur kostur að sumarlagi en þar skítkalt og dimmt að vetri til. En að ætla sér að „rétta“ hlut einnar borgar gagnvart annarri borg er fráleitt og varla hugmyndin með ferðasíðu í dagblaði. Fólk á að ferðast þangað sem það vill og kýs sjálft en ekki ferðast til að „rétta“ hlut einhvers.

Hvatning túrista skyldi þó ekki tengjast því að Stokkhólmur er ein af þeim borgum þangað sem aðeins er í boði að fljúga með einu flugfélagi? Sama flugfélagi og hefur boðið Túrista í ferðir hingað og þangað. Til Stokkhólms er engin samkeppni og verðlag tekur yfirleitt mið af því.