Lággjaldaflugfélagið easyJet er nú oftar en ekki að bjóða skrambi lág verð á flugi alla jafna og ekki versnar það þegar ofan á lág fargjöld bætist allt að 20 prósenta afsláttur.

Aukaafsláttur ofan á lág fargjöld easyJet næstu sólarhringa. Skjáskot

Aukaafsláttur ofan á lág fargjöld easyJet næstu sólarhringa. Skjáskot

Það er einmitt það sem er í boði nú á fleiri hundrað þúsund flugferðum hjá breska flugfélaginu og verður næstu fimm sólarhringa rúma.

Þetta á vitaskuld einnig við um flugferðir félagsins til og frá Íslandi og sjálfsagt að skoða það í þaula en afsláttur gildir á flugferðir frá lok febrúar og vel fram í júnímánuð.