Norska lággjaldaflugfélagið Norwegian fær feita falleinkunn hjá dönskum neytendum sem hafa í þúsundavís farið fram á skaðabætur á hendur flugfélaginu vegna vanefnda og mikilla tafa á lengri flugleiðum.

Langferðir Norwegian þykja ekki upp á marga fiska í Danmörku.

Langferðir Norwegian þykja ekki upp á marga fiska í Danmörku.

Fjallað er ítarlega um flugfélagið og ferðir þess frá Kaupmannahöfn til Bandaríkjanna í nýjasta þætti neytendaþáttar danska ríkissjónvarpsins Kontant. Þar bera farþegar flugfélaginu slæma sögu en tafir og það miklar hafa orðið á fjölmörgum flugferðum þess til Flórída og til baka undanfarna mánuði.

Önnur stór kvörtun varðar auglýsingar Norwegian þess efnis að flogið sé á hinum glæsilegu Dreamliner vélum á lengri flugleiðum en það bara alls ekki staðist. Farþegar margir verða ítrekað að sætta sig við eldri portúgalskar leiguvélar sem standa hinni nýju Boeing langt að baki.

Til að bæta gráu ofan á svart neitar flugfélagið statt og stöðugt að bæta farþegum tafirnar Evrópulögum samkvæmt og fjöldi mála enda fyrir dómstólum þar sem norska flugfélagið tapar oftar en ekki.

Sjálfsagt að kynna sér þetta hér en tekið skal fram að hér er aðeins um langflug að ræða. Fararheill getur vottað að það er fyrirtak að fljúga með þeim innan Evrópu og það yfirleitt á hlægilegu verði.