Okkur barst ein fyrirspurn um hvort það væri hundrað prósent öruggt að heimsækja Grikkland á næstu mánuðum með tilliti til frétta um ný stjórnvöld og hugsanlega upptöku drökmu í stað evru.

Tilfelli þess að ferðafólk hafi orðið vart við öldu mótmæla og óánægju í Grikklandi eru nánast engin. Mynd Nikos Koutoualas
Ekkert liggur fyrir um hvað verður í grískum stjórnmálum á næstunni. Vissulega vilja ný stjórnvöld ekki sjá meira af aðhaldsaðgerðum og niðurskurði enda þær löngu komnar niður í bein og landið og fólkið meira og minna lamað síðustu árin.
Hvort það þýðir að Grikkir segja sig úr Evrópusambandinu eður ei skal ósagt látið og það gerist í öllu falli ekki yfir nótt ef það verður þá raunin því skoðanakannanir sýna að mikill meirihluti landsmanna vill halda evrunni.
Nánast má fullyrða að hvað sem verður komi það ekki niður á ferðafólki í landinu. Nánast ekkert hefur bjátað á í ferðaþjónustu síðustu árin þrátt fyrir róstur, mótmæli og almenna óánægju. Engum dettur í hug að taka slíkt út á ferðafólki sem skapar fólki störf og tekjur.
Fólk ætti því alls ekki að hafa neinar slíkar áhyggjur. Jafnvel þó Grikkir hendi evrunni á augnabliki yrði eftir sem áður auðvelt að nota hraðbanka og kort þó gjaldmiðillinn væri annar. En það er vægast sagt ólíklegt að gamla drakman fái aftur heiðurssess hér. Hún myndi líklega líka falla skarpt gagnvart evru sem um leið gerir ferðalagið ódýrara en áður.







