V ið skulum ekki blekkja okkur. Mörg okkar halda framhjá og sum hótel eru betri til þess arna en önnur. Hér eru sex þau bestu samkvæmt hinu þekkta tímariti Concierge.

Eitt af þeim hótelum heims sem tímaritið Concierge segir frábær til framhjáhalds. Mynd laurenhcraig

Eitt af þeim hótelum heims sem tímaritið Concierge segir frábær til framhjáhalds. Mynd laurenhcraig

Ekki liggur kristaltært fyrir með hvaða hætti tímaritið velur vænlegustu hótel til framhjáhalds en meðal þess sem litið var til voru fín og stór herbergi, rúm á stærð við Færeyjar, frábær veitingastaður sem sendir upp á herbergi og auðvitað starfsfólk sem er ekki blaðrandi út í eitt við alla.

Greinilega ekki hávísindalegt í neinu tilliti en hér eru allavega hótelin sem þessi skilyrði uppfylla.

Þetta er dýrt hótel og gott og hver og einn gestur fær sinn eigin þjón sem er þagmælskur eins og ófrísk nunna. Nútímaleg herbergi og aðeins gler skilur að rúm og baðherbergi. Sem er sexí ef elskhuginn er í sturtu en minna ef viðkomandi er að hægja á sér.

Tjaldlaga híbýlin á þessu hóteli í afvikinni vík í um klukkstund frá Vancouver í Kanada kemst á lista. Kannski nafnið gefi tilefni til en kannski full langt farið til að leyna ástarfundum og afar óspennandi yfir vetrartímann. Concierge vill samt meina að sjávarniðurinn muni auka nautn framhjáhaldsins til muna.

Nafnið er allavega gefið og þar sem ritstjórn Fararheill hefur heimsótt Cartagena er hægt að taka undir að hér eru rómantískar bylgjur út um allt. Concierge vill hins vegar meina að þetta sé málið því það liggur ekki ljóst fyrir að hér sé neitt hótel. Byggingin flott en ómerkt og enginn fer neitt inn án þess að eiga erindi. Það hjálpar líka að á efstu hæð er heitur pottur, sundlaug og bar.

Þetta kallar tímaritið að fela sig fyrir allra augum. Lafayette er gamaldags hótel og nágrannar vanir því að þangað skjótist inn menn með hatta og í frökkum með reglulegu millibili. Hjálpar reyndar aðeins að öll herbergi hér eru gamaldags og með arin í þokkabót. Arin er vitaskuld eðaltól til að kveikja neista hjá giftum elskendum og gömul harðviðargólf saka ekki heldur. Best kannski að hér er ekkert lobbí eða desk heldur hringja áhugasamir á undan sér og er hleypt sérstaklega inn.

Ein eyja, eitt hótel og það svo afvikið að þangað eru ekki einu sinni almennilegir vegir. Reyndar er hér nánast ekki neitt annað en eitt lúxushótel svo gestir fá það næði sem þeir kjósa sem er jú það sem elskendur í meinum vilja helst. Ekki samt kannski á allra færi því fyrir utan einkaflug á staðinn kostar nóttin rúmar hundrað þúsund krónur. En hvað gerir fólk ekki fyrir ástina.

Á besta stað í miðborg Edinborgar nánast við hlið kastalans fræga er Witchery sem almennt er þekktara sem veitingastaður en annað. Það eru þó hér á efri hæðinu sjö fimm stjörnu herbergi fyrir vandláta og hvert og eitt hlaðin bæði nútíma íburði og sögusögnum fyrri tíma en nafn staðsins vísar til nornaveiða sem áttu sér hér stað á miðöldum og voru hér þúsundir kvenna brenndar á báli fyrir grunsamlegt athæfi.