Með vorinu kemst á aukin samkeppni á tveimur flugleiðum vestur um haf til Boston og Washington D.C./Baltimore þegar vélar Wow Air fljúga þangað fyrsta sinni í áætlunarflugi. Úttekt Fararheill sýnir að verðmunur er talsverður Wow Air í hag.

Sé sveigjanleiki mögulegur er mun ódýrara að fljúga vestur um haf með Wow Air en Icelandair.

Sé sveigjanleiki mögulegur er mun ódýrara að fljúga vestur um haf með Wow Air en Icelandair.

Úttektin sýnir að mjög munar á fargjöldum beggja flugfélaga daga á milli. Það skiljanlegt hjá Icelandair sem selur miða á margs konar farrými, frá sardínupakkanum og upp í Saga Class. Minna skiljanlegt hjá Wow Air sem aðeins selur sæti á almennings farrými.

Þannig er dýrara að fljúga með Wow Air á tilteknum dögum sé farangur tekinn með eins og við gerum til að fá út sem sanngjarnastan samanburð. Sömuleiðis er tugþúsunda króna dagamunur hjá Icelandair.

Trixið hér að vera sveigjanleg og byggja ferðalagið kringum ódýrar flugferðir en ekki plana ferð og neyðast svo til að kaupa fargjöld háu verði.

Að því sögðu er hægt að gera fín kaup í flugmiðum Wow Air sé stefnan tekin til Boston eða Washington D.C/Baltimore í sumar. Enn er töluvert af miðum í boði aðra leið með farangri niður í 25 þúsund krónur en líklega verður það ekki mjög lengi í viðbót.

* Úttekt gerð kl. 11.40 þann 10. janúar 2015. Leitað á vefsvæðum beggja flugfélaga samtímis að flugi aðra leið með farangri. Ein 20 kg taska með í för hjá Wow Air en heimilt er að taka tvær 23 kg töskur með Icelandair. Sömuleiðis er 5 kg hámark á handfarangri hjá Wow Air án þess að greitt sé aukalega fyrir. Lægsta verð sem fannst.