Markaðsmenn fyrirtækja beita öllum brögðum í bókinni til að fá þig til að kaupa hvers kyns vöru eða þjónustu. Þar eru flugfélög og ferðaskrifstofur ekki undanskilin. Þess vegna er ráð að leggja ekki mikið upp úr því þó á mörgum bókunarvélum flug- og ferðafyrirtækja standi að aðeins séu örfá sæti eftir.

Bókunarvél Primera Air fyrir skömmu þar sem aðeins fjögur sæti voru eftir á lægsta verði á öllum þeirra flugferðum til og frá Tyrklandi allt sumarið. Skjáskot
Það er sálfræðilega sniðugt að koma slíkum upplýsingum á framfæri því fólki finnst lítið gaman að greiða meira fyrir vöru en þörf er á og ef aðeins eru „tvö sæti eftir á þessu verði“ í ákveðna ferð eru sterkar líkur á að fólk láti strax vaða og bóki í stað þess að hinkra við.
Það hefur lengi verið vitað að lággjaldaflugfélagið Ryanair beitti þessari aðferð og gerir jafnvel ennþá en við höfum ekki mikið orðið vör við þetta hérlendis enn sem komið er.
Fararheill gerði þó óvísindalega rannsókn hjá Wow Air sem einmitt gerir mikið af því að tilkynna um örfá sæti eftir á lægsta verði á bókunarvél þeirra. Við fundum flug til Köben og heim aftur í febrúar og í báðum tilfellum voru „aðeins tvö sæti eftir.“ Annars vegar flugið út á 12.999 og hins vegar flug heim aftur á 12.319.
Einn aðili úr ritstjórn hóf bókunarferlið á þessum tveimur flugferðum fyrir tvo en sé það raunverulega rétt að aðeins tvö sæti hafi verið eftir í umræddum tilvikum ætti verð strax að hækka sé leitað á sömu dagsetningum af öðrum eða skömmu síðar. Þeir geta jú ekki selt sömu tvö síðustu sætin á meðan bókun á þeim stendur yfir.
Annar aðili úr ritstjórn á öðrum stað með aðra IP-tengingu og í svokölluðum incognito vefham með allt flýtiminni hreinsað tékkaði á sömu ferðum á sömu dagsetningum 30 sekúndum síðar meðan sá fyrri var enn inni í sinni bókun.
Viti menn! Verðið var ennþá hið sama og ennþá voru „aðeins tvö sæti eftir.“ Það voru sem sagt samkvæmt þessu ekki tvö sæti laus heldur fjögur að minnsta kosti því seinni aðilinn gat líka hafið bókunarferlið án vandamála.
Við ætlum svo sem ekki að gera nein hróp og köll út af þessu. Kannski er um tæknivillu að ræða og kannski er þetta bara sölutrix. Í öllu falli er ágætt að hafa þetta í huga.







