Heimurinn hefur um langa hríð dáðst að hugviti, dugnaði og elju Þjóðverja þegar kemur að hinum ýmsu verkefnum. Eitthvað er nú hætt við að það sé að snúast upp í andhverfu sína. Hinn frægi nýi flugvöllur Berlínar sem átti að opna árið 2011 mun ekki sinna neinum farþegum fyrr en árið 2017 í fyrsta lagi.

Rólegt á Brandenburgarflugvelli. Og það verður áfram næstu árin. Mynd Matt Thorpe
Þjóðverjarnir virðast ekki kunna að byggja einn nýtísku flugvöll lengur. Það er jú æði langur vegur frá því að taka við farþegum með pompi og prakt 2011 og árið 2017. Og hver veit nema það gangi heldur ekki eftir. Það er jú búið að fresta opnun alls fjórum sinnum frá 2011.
Þýski miðillinn Deutsche Welle skýrir frá því að búið sé að skipa nýjan yfirmann yfir verkefnið sem eðlilega er löngu farið úr böndum fjárhagslega.
Fjárhagshliðin er eitthvað sem þýska ríkið og Berlín verða að hafa áhyggjur af. Verra að gestir til Berlínar verða áfram að gera sér Tegel eða Schönefeld flugvelli að góðu en báðir eru fyrir löngu sprungnir og tafir á báðum völlum algengar. Fyrir utan að tengingar inn í borgina frá þeim eru fjarri því fyrsta flokks.







