Einn af leiðinlegri hlutum hvers ferðalags er bið eftir farangri eftir að lent er en á mörgum stærri flugvöllum á annatímum getur biðtími eftir töskum hoppað í klukkustund þegar verst lætur. Á Gatwick flugvelli í London reynist Icelandair eitt af örfáum flugfélögum sem koma öllum farangri á færibandið á undir 35 mínútum.

Toppárangur Icelandair í Gatwick. Mynd Chris Jones

Toppárangur Icelandair í Gatwick. Mynd Chris Jones

Það er sjálfsagður hluti af þjónustu hvers flugfélags að koma farangri í góðu ástandi til farþega sinna eins fljótt og kostur er að flugi loknu og þar er Icelandair með 100 prósent árangur í Gatwick samkvæmt tölum frá Gatwick flugvelli sem tekur slíkt saman. Allir farþegar þeirra gátu yfirgefið flugstöðina með farangurinn á rétt tæpum hálftíma. Það er feykigott og blóm í hnappagat ekki síst þar sem vélar Icelandair flokkast sem stórar en þar er miðað við 50 mínútna biðtíma eftir farangri sem eðlilegan tíma.

Lakari reyndist árangur Wow Air þrátt fyrir að fljúga mun færri ferðir og ekki síður fljúga með mun minni farangur enda ekkert slíkt innifalið í verði flugfélagsins. Wow Air kom farangri til farþega að flugi loknu innan á innan við 35 mínútum í 87 prósent tilfelli en lengri biðtími í 13 prósent ferða.

Bæði íslensku flugfélögin þó að standa sig vel í samanburði við erlenda risa samkvæmt þessu þó setja verði fyrirvara við. Það er jú mun auðveldara að afgreiða einstöku ferðir smærri flugfélaga en að eiga við endalausar komur easyJet (84%), Ryanair (98%), Norwegian (80%) eða British Airways (94%)