Hægt er að færa dágóð rök fyrir að fljótasiglingar eru mikið mun skemmtilegri ferðamáti en siglingar með stórum skemmtiferðaskipum á heimsins höfum. Það er meiri nánd um borð, leikur einn að kynnast öllum um borð á skömmum tíma, mun meira að sjá og skoða enda yfirleitt víða lagst að bryggju og þjónusta öll persónulegri.
Sé einhver einn galli á fljótasiglingum almennt stendur yfirleitt upp úr að slíkar siglingar eru oft dýrari en siglingar með risa skemmtiferðaskipum. Almennt má segja að hægt sé reglulega að leita uppi fínar Miðjarðarhafs- og Karíbahafssiglingar á vel undir hundrað þúsund krónum á mann en fljótasiglingar með betri skipum eru nær því að kosta 200 þúsund krónur á mann í ferðum sem taka lengur en eina helgi eða svo.
Sem er ástæða þess að við ætlum að benda ykkur á að mörg stærri fljótasiglingafyrirtækin í Evrópu eru þessa stundina að bjóða drjúga afslætti á siglingum á næsta ári svo lengi sem bókað sé eigi síðar en í lok þessa mánaðar.
Þar er ekki um neina slef afslætti að ræða. Sé dæmi tekið hjá Viking River Cruises, sem er einn af stóru aðilunum í þessum bransa, er fyrirtækið að bjóða allt að 200 þúsund króna afslátt á tilteknum ferðum. Ekki amalegt það og við hvetjum áhugasama til að kíkja. Annar plús er nefninlega við að bóka með löngum fyrirvara og hann er sá að þá er einnig hægt að verða sér úti um flug til Evrópu á lægsta mögulega verði ef allt er eðlilegt.
Nokkur fljótasiglingafyrirtæki sem gott orð fer af eru:








