Allir sem fylgst hafa með tíðindum frá Tyrklandi undanfarin misseri hafa orðið þess varir að þar ríkir nokkur ólga milli þeirra sem vilja meiri trúarstemmningu inn í stjórnmálin og hinna sem vilja halda slíku utanvið. Í hinum vinsæla strandbæ Antalya er glöggt dæmi um þetta nú.

Nú er skyndilega ein einasta strönd í Antalya ekki opin öllum. Mynd Adam Lederer

Nú er skyndilega ein einasta strönd í Antalya ekki opin öllum. Mynd Adam Lederer

Hingað til hafa allar strendur bæði bæjarins sjálfs og nágrennis verið opnar öllum endurgjaldslaust og það hafa meðal annars þúsundir Íslendinga nýtt sér gegnum tíðina. Svo er ekki lengur. Bæjaryfirvöld hafa nefninlega lokað einni ströndinni fyrir öllum nema kvenfólki.

Þar er um að ræða Sarisu ströndina, Sarisu Plaji, sem ekki er sú stærsta en hefur verið vinsæl eins og aðrar strendur hér enda sækja Antalya heim milljónir manna árlega til að hrista doða og hvítu úr kroppi.

Einhver gæti haldið að hér væri verið að koma til móts við lesbíur en því fer fjarri þó þær séu velkomnar á Sarisu strönd. Hér er verið að taka tillit til trúar margra heimamanna að tyrkneskar konur eigi ekki að láta sjá sig með öðrum en eiginmönnum og alls ekki spóka sig á hefðbundnum ströndum kringum hálfnakta vesturlandabúa.

Það er hin óopinbera skýring samkvæmt þarlendum miðlum en hin opinbera skýring er að köll hafi verið eftir sérstakri strönd fyrir konur eingöngu og þess vegna sé brugðist við nú.

Engar áhyggjur af því að valsa óvart inn á Sarisu. Bæði eru sérstakir kvenkyns verðir á vappinu og stór og mikil skilti á áberandi stöðum. Svo er ströndin nokkurn spöl vestur af bænum sjálfum og ekki alveg í alfararleið.