Hjá viti bornum þjóðum er raunin sú, eins og Fararheill hefur fjallað um, að snarlækka verð á pakkaferðum þegar skammt er til brottfarar. En hjá Úrval Útsýn gera menn þetta aðeins öðruvísi; þeir hækka verðið.

Þennan morguninn beið skeyti í pósthólfinu okkar frá Úrval Útsýn þar sem við erum hvött til að hoppa strax af stað í vikuferð til Tenerife. Vikuferð sem hefst á morgun 20. ágúst. Auglýsingu Úrval Útsýn má sjá hér að neðan:

uubr

uubr2

Gott og blessað að hvetja fólk til ferðalaga enda gengur Fararheill.is eingöngu út á slíkt en það verður að vera einhver gulrót ef fólk á að snarbreyta áætlunum sínum á tæpum sólarhring jafnvel þó verðlaunin séu sól og sæla á Tenerife.

En ólíkt öðrum ferðaskrifstofum þessa heims er Úrval Útsýn ekkert að bjóða og það sem verra er; ferðaskrifstofan bætir ofan á verðið þó innan við sólarhringur sé til stefnu. Eins og það sé einhvern veginn lúxusdíll að hverfa frá öllu á nóinu.

Skoðum sama vikupakka fyrir tvo hjá Úrval Útsýn einni viku síðar þann 27. ágúst til 3. september og þá finnum við þetta hér:

uubr3

Taka lesendur eftir einhverju sérstöku? Neiti fólk að stressa sig á brottför á morgun þá spara hjón eða par um sextán þúsund krónur á að panta bara í næstu viku og taka því rólega. Sama hótel, sami fjöldi fólks, sama hálfa fæðið. En töluverður verðmunur. Algjörlega galið stöff.

En tóku lesendur eftir hinu sem skýtur skökku við? Í póstinum er La Siesta hótelið þriggja stjörnu eða meðalplebbahótel. En á vef ÚÚ er þetta fjögurra stjörnu sem er farið að skjaga í dálítinn lúxus.

Ljóst má vera að einhver þarf að fara með stóran kúst um þetta fyrirtæki og taka til hendinni.