Af og til detta inn á borð ritstjórnar sértilboð hins norræna SAS sem hingað flýgur reglulega frá Osló. Tilboð þeirra þó sjaldan það merkileg að við höfum orð á. En nú er ástæða til.
Flugfélagið er að blása til haustútsölu næstu dægrin eða fram til 26. ágúst og þar fást fargjöld í haust og langt út veturinn á mun lægra verði en venjulega. Til að mynda flug til Osló niður í 13.910 og heim aftur niður í 12.700 krónur.
Einhver myndi umsvifalaust benda á að fargjöld lággjaldaflugfélagsins Norwegian séu nú snöggtum betri en þessi tilboð SAS og að vissu leyti er það rétt. Hægt er að finna flug hjá Norwegian aðra leiðina út niður í sjö til átta þúsund krónur nokkra mánuði fram í tímann. En þá á líka eftir að greiða sérstaklega fyrir farangur og það bætir nokkrum þúsundköllum strax við það gjald.
Þegar það er tekið inn í myndina er tilboð SAS fjarri því slæmt og þetta er fimm til tíu þúsund króna lægra verð en greiða þarf með Icelandair lægst sömu leið næstu mánuði.
PS: ekki gleyma svo því sem við höfum ítrekað bent á að frá Osló er hægt að fara í stórfínar pakkaferðir á mun lægra verði en fæst hérlendis.








