Ætli Elko kæmist upp með að auglýsa þurrkara á tilboði sem svo kæmi í ljós að væru án þurrktromlu sem þyrfti að kaupa aukalega?

Brekkurnar í Saalbach í Austurríki eru dágóðar fyrir lipra og leikna. En enginn fer í skíðaferð þangað nema greiða sérstaklega fyrir skíði. Mynd chip_2904
Kannski í fimm mínútur eða svo enda yrðu viðskiptavinir aldeilis brjálaðir og umsvifalaust hringt í fjölmiðla og Neytendastofu.
Hvers vegna það er ekki raunin með það sem ferðaskrifstofur margar kalla skíðaferðir en í þeim ferðum er ekki innifaldar ferðir á skíðasvæðin, engir skíðapassar og heldur engin skíði er okkur hjá Fararheill hulin ráðgáta. Dálítið eins og neytendur hafi gaman að því að láta fífla sig.
Flottur nýr haust- og vetrarbæklingur Heimsferða fylgir Fréttablaði Ingibjargar, dóttur Pálma heitins í Hagkaupum sem ekki mátti vamm sitt vita gagnvart viðskiptavinum á sínum tíma. Öðru gegnir hjá Fréttablaðinu sem sér ekkert athugavert við skíðaferðir sem eiga ekkert skylt við skíðaferðir.
Sé stungið niður auga í bæklingi Heimsferða er þessi líka indælis skíðaferð í boði til Hinterglemm í Austurríki á fimm stjörnu hóteli í með halbpension, hálfu fæði, í janúar næstkomandi fyrir litlar 329.900 krónur á mann miðað við tvo í sjö daga. Sem gerir tæpar 95 þúsund krónur á dag á parið. Sennilega verið að reyna að ná til manna á borð við forstjóra Bláa lónsins með sínar sex til sjö milljónir króna í beisik mánaðarlaun fyrir utan allt annað.
En bíðum við. Ekki eru öll kurl komin til þessarar grafar. Ekkert smátt letur er að finna í bæklingi Heimsferða. Né heldur hver er ábyrgðarmaður blaðsins en ábyrgðarmann skal tilgreina við útgáfu allra tímarita og bæklinga sem út koma lögum samkvæmt. Ekki nokkur aðili að ganga á eftir því eins og við er að búast hjá farlama eftirlitsstofnunum.
Smáa letrið kemur nefninlega ekki í ljós fyrr en fólk ætlar á vef Heimsferða að bóka viðkomandi ferð. Og það er stórt smátt letur. Í fyrsta lagi eru: skíðasett EKKI innifalin, á heimasíðu Primera Air má bóka og greiða fyrir þau.
Ókei… skíðaferð en engin skíði með. Það er skemmtileg nýjung eða þannig. Reyndar er engin ferð til Austurríkis á vef Primera Air svo varla er hægt að bóka þar eitt né neitt. Aðeins Alicante og Billund í boði og engir nema helberir vitleysingar fara með skíðin sín þangað.
Í öllu falli kostar 1.700 krónur að taka skíðasett eða bretti með í flug aðra leiðina svo tveir aðilar til Austurríkis með skíða þurfa að bæta alls 6.800 krónum við 329.900 króna farmiðann. Samtalan er þá raunverulega 333.300 krónur á mann.
Þá er allt klappað og klárt líka….
Nei, ekki alveg. Nema fólk ætli að dúllast á gönguskíðum fyrir utan fokdýrt hótelið í Hinterglemm þarf að punga út fyrir skíðapassa hér líka. Ekkert er minnst á þann kostnað í hinum flotta bæklingi Heimsferða. En engin er skíðaferðin nema komist sé í brekkurnar ekki satt?
Hvað kostar svo skíðapassi fyrir hjónakornin þessa vikudvöl ef ætlunin er að taka vel á því í brekkunum sex daga af sjö? Samkvæmt upplýsingum á vefnum fæst slíkur passi á 37 þúsund krónur á mann eða 74 þúsund krónur á parið.
Þannig er raunverulegur kostnaður við „skíðaferðina“ hjá Heimsferðum ekki 329.900 krónur heldur 370.300 krónur.
Jæja, þá er allt komið og lokaniðurstaða komin í málið…
Neibbs! Ekki aldeilis.
Skíðahjónin í þessu tiltekna dæmi eru ekki einu sinni komin á hótelið sitt. Það er vegna þess að ferðir frá flugvelli og út á flugvöll að ferð lokinni eru ekki innifaldar í verði þessarar „skíðaferðar.“
Heimsferðafólk er reyndar svo vinsamlegt að bæta því sjálfkrafa inn í bókun á vef sínum og þar sést að far aðra leið að hóteli kostar manninn 4.900 krónur og parið því alls 9.800 krónur. Samtals fram og til baka því 19.600 krónur. „Skíðaferðin“ því hætt að kosta 370.300 heldur er heildarkostnaður nú 389.900 krónur. Það er SEXTÍU ÞÚSUND KRÓNUM hærra verð á mann en auglýst er.
Ofangreint á ekki aðeins við um þennan dýrasta kost í boði heldur og til allra „skíðastaða“ sem Heimsferðir auglýsa í bæklingi sínum. Auglýst verð á ekkert skylt við raunverulegt verð.
Fylgist grannt með. Fararheill mun von bráðar sýna ykkur hvernig komist er í fyrsta flokks brekkur Austurríkis án þess að eiga viðskipti við svona aðila.







