Ný ferðaskrifstofa, Eskimo Travel, hefur að undanförnu auglýst beint flug til Marrakesh í Marokkó í tólf daga ferð sem hefjast á núna áttunda ágúst. Mun þetta vera fyrsta utanlandsferð sem Eskimo býður og hér gera menn töluverð byrjendamistök.
Frábært reyndar að það fjölgi í flóru ferðaskrifstofa. Samkeppni er alltaf af hinu góða og fjölgun áfangastaða bara stórkostlegt mál og veitir ekki af.
Svona áður en við komum að kjarna vandamálsins er alveg ástæða til að taka undir að Marrakesh er almennt skemmtileg heimsóknar þó mannfjöldi hér og áreiti fari fyrir brjóst stöku ferðalanga. Hún er strangt til tekið tvær borgir; sú gamla og sú nýja og mjög afgerandi munur á milli eins og gefur að skilja.
Kynna má sér málið á vegvísi Fararheill um Marrakesh hér og þar jafnframt finna allra lægstu verð á gistingu í borginni.
Vandamálið við ferð Eskimo núna áttunda ágúst er þó fyrst og fremst þetta:
Þröngar götur stappaðar af fólki og um og yfir 40 gráðu hiti!!!
Treystið okkur. Ágúst er einfaldlega ekki sniðugur mánuður til að heimsækja Marrakesh. Ef þú ætlar að hreyfa þig sprettur fram sviti og göngutúr út á svalir kallar á sturtu strax í kjölfarið. Þaðan af síður er fólk að njóta þess að skoða vörur, spila golf eða annað það sem ferðamenn gera skemmtilegt. Fyrir utan að enginn Íslendingur sefur vel í 28 stiga hita sem er næturhitinn hér núna og loftræsting oft lítil sem engin á hótelum og gistiheimilum. Farið í vetur og njótið mun betur. Sem rímar líka 🙂
Verð á þessu flugi er 99 þúsund krónur á mann en uppboðsvefurinn Aha er reyndar að bjóða flugið líka niður í 79 þúsund krónur þegar þetta er skrifað. Þar er eingöngu um flugið að ræða og gisting öll eftir. Ekki hræðilegt miðað við það sem gerist og gengur og á hótelvef Fararheill má finna gnótt gistimöguleika á allra besta verði. Óhætt er að mæla með að dvelja fremur í riad en á hefðbundnum hótelum sé þess kostur og sé ætlunin að versla er allar vörur yfirleitt 50 prósent ódýrari en kaupmenn láta í veðri vaka í upphafi. Prútt er regla.








