Á einu augabragði varð lítill veitingastaður í smábæ á Írlandi þjóðþekktur og gott betur en það. Ástæðan sú að eigandinn setti upp skilti í gluggann þar sem „háværir“ bandarískir ferðamenn eru beðnir að halda sig fjarri.
Það er ekkert nýtt að bandarískir ferðalangar hafi stimpil á sér fyrir að tala hátt og hafa hátt í samskiptum. Þó alhæfingar séu aldrei til góðs er það æði algengt þegar Bandaríkjamenn koma saman að láta í sér heyra jafnvel þó viðmælandi sitji við hliðina.
En að einhver segi hingað og ekki lengra er nýmæli og bannið hefur ekki fært Peter´s Place í bænum Waterville neitt nema neikvæða strauma á samfélagsmiðlum. Bandaríkjamenn eru nefninlega meira og minna allir á slíkum miðlum og svona bann var fljótt að vekja athygli. Ekki síður fúlir eru aðrir ferðaþjónustuaðilar í héraðinu sem telja þetta koma slæmu orði á ferðamennsku hér.
Eigandinn ypptir þó bara öxlum og hyggst ekki gefa sig samkvæmt því sem fram kemur í Irish Times um málið.








