Sú var tíðin, fyrir sirka fimm árum eða svo, þegar samkeppni meðal flugfélaga og ferðaskrifstofa hérlendis var um það bil sú sama og Mjólkursamsalan glímir við, að það var lítið vit í öðru en bóka flug og ferðir með drjúgum fyrirvara til að negla sómasamlegt verð. Það er ekki endilega raunin lengur.

Kemstu út með litlum fyrirvara? Þá er hægt að njóta drjúgs afsláttar á flugi, ferðum og villum. Skjáskot

Kemstu út með litlum fyrirvara? Þá er hægt að njóta drjúgs afsláttar á flugi, ferðum og villum. Skjáskot

Það er freistandi nú þegar innlendir aðilar auglýsa ferðir sínar með þokkalega löngum fyrirvara og bjóða jafnvel aukaafslátt bóki fólk snemma að kýla strax á Kanaríferðina eða sérferðina til Albaníu í febrúar. En nýleg dæmi sýna og sanna að það eru jafnvel þeir sem bíða sallarólegir sem njóta svo betri kjara þegar upp er staðið. Klárt dæmi um að þeir síðustu verða jú stundum fyrstir eins og hermt er í gamalli bók.

Þessu til sönnunar nægir til dæmis að líta á flugfargjöld Wow Air seinnihluta vetrar til Barcelóna á Spáni. Eins og við fjölluðum um hér fundust lengi vel í vor engin fargjöld til katalónsku borgarinnar undir 30 þúsund krónum aðra leiðina. Það var ódýrasta fargjaldið í boði aðra leiðina vel fram í júníbyrjun. En svo skyndilega einn góðan veðurdag lækkaði Wow Air verð duglega til Barcelóna og enn má finna fargjöld kringum 20 þúsund krónum þangað þetta sumarið.

Sömu sögu er að segja af ferðaskrifstofunni Nazar sem hér starfar. Á vef þeirra hefur undanfarið mátt finna nýjan hnapp: „síðasti séns“ þar sem ferðir á allra næstu dögum eru í boði á niðursettu verði. Komist menn með litlum fyrirvara má þar spara 40 til 50 þúsund krónur á mann á stöku ferðum umfram hefðbundið verð. Nazar er ekki eitt um hituna því Heimsferðir hafa reglulega líka skorið ágætlega af lausum sætum í ferðir sem skammt er í. Mjög til eftirbreytni og jákvætt fyrir alla aðila.

Í þriðja stað er þetta líka raunin hjá velflestum aðilum sem leigja út íbúðir og villur. Ef kofinn er ekki kominn í leigu í júlí er auðvitað galið annað en slá af verðinu þegar júlí er á næsta leyti. Á vef íbúðaleigumiðla á borð við Villarenters og Airbnb, svo tvö dæmi séu tekin, er líka hægt að leita sérstaklega að „síðasta séns“ tilboðum. Stutt yfirlega á vef Villarenters leiðir í ljós að geti fjölskylda komið sér til Cómo á Ítalíu fyrir 1. ágúst er hægt að leigja þar fínustu villu með sundlaug og alles í viku með 70 þúsund króna afslætti frá uppsettu verði. Það munar um slíkt.

Auðvitað er þetta ekki fest í stein og oft má jú njóta betri kjara með fyrirhyggju en það er ekki lengur alveg svo einfalt.