Margir eiga sér þann draum fyrir dánardægur að eyða nótt eða tveimur í hinni syndsamlegu Las Vegas vestur í Bandaríkjunum. Öðrum finnst meira til Los Angeles koma meðan þriðji hópurinn er spenntari fyrir náttúruundrum á borð við Miklagljúfri en yfirborðskenndum borgum. Ekki má gleyma þeim er vita ekkert betra en sleikja sólskin í ljúfri siglingu í 30 stiga hita.
Hvað ef við gætum nú sameinað þetta allt í einni ferð?
Svo vel vill nú til að sé fólk spennt og eigi krónur í buddu er einmitt svona ferð í boði næsta vetur og í nóvember sérstaklega hægt að bóka á lægsta mögulega verði eða 275 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman. Það kann að hljóma í hærri kantinum en þá áttu eftir að heyra smáatriðin.
Umrædd ferð er í boði frá Bretlandi en flogið er frá Gatwick þangað sem Icelandair, Wow Air og easyJet fljúga þráðbeint frá Íslandi í vetur. Sú samkeppni tryggir að til Gatwick er komist undir 15 þúsund krónum og það jafnvel með farangur aðra leiðina.
Frá Gatwick er flogið rakleitt til Las Vegas þar sem dvalið er þrjár nætur á besta stað áður en fólki er ekið að hinu merkilega Miklagljúfri, Grand Canyon, þar sem gist verður í kúrekastíl á búgarði í tvær nætur. Þyrluflug um gljúfrið fræga er innifalið.
Eftir þetta er flug til Los Angeles þar sem gesti geta dúllað sér í þrjár nætur á góðu hóteli skammt frá Beverly Hills áður en stigið er um borð í lúxusfley þar sem fjórum nóttum er eytt með ljúfasta móti.
Ekki slæmur pakki eða hvað? Finnst þér verðið ennþá í dýrari kantinum?
Til samanburðar er hin ágæta ferðaskrifstofa Trans-Atlantic að bjóða þriggja nátta ferð til Las Vegas í sama mánuði og ofangreind ferð. Íslenska ferðin kostar par eða hjón 580 þúsund krónur eða 193 þúsund krónur hver einasti dagur meðan dagsprís bresku ferðarinnar á tvo saman er rétt rúm 42 þúsund plús kostnaður til London og heim aftur.








