Ritstjórn Fararheill hefur um nokkurt skeið fylgst með forsvarsmönnum Flugfélags Íslands fara mikinn um hræðilega skattlagningu innanlandsflugsins. Skattlagningu sem sé meginorsök þess að þeim fækkar ár frá ári er notfæra sér þjónustu flugfélagsins. Sitthvað í þeim málflutningi stenst þó enga skoðun.

Skattar á innanlandsflugið eru ekki svo háir í samanburði við aðra. Mynd Aero Icarus

Skattar á innanlandsflugið eru ekki svo háir í samanburði við aðra. Mynd Aero Icarus

Leit á Google leiðir í ljós að finna má fjölmörg viðtöl og greinar þar sem forstjóri Flugfélags Íslands kvartar og kveinar yfir miklum álögum ríkisins. Álögur sem er þungar í skauti flugfélagsins og enn þyngri hjá landsmönnum sem hafa fækkað flugferðum sínum innanlands mjög mikið á síðustu árum. Fimmtíu þúsund fleiri fóru um Reykjavíkurflugvöll árið 2011 en gerðu á síðasta ári. Sem er meira í ætt við hrun en fækkun á ekki stærra landi. Þó komu margfalt fleiri útlendingar til landsins 2013 en 2011 en þeir fljúga heldur ekki mikið annað en til Grænlands virðist vera.

Innanríkisráðherra hefur í kjölfar þess skipað nefnd sem ætlað er að finna leiðir til að lækka þessar hræðilegu álögur almenningi til hagbóta. En hversu hræðilegar eru álögurnar í raun?

Taflan hér að neðan sýnir skatta og gjöld sem fjögur flugfélög innheimta af hverjum og einum farþega í flugi fram og aftur sem er sambærilegt við flug Flugfélags Íslands frá Reykjavík til Egilsstaða og aftur til baka. Auðvitað kemur fleira til enda rekstur flugfélagsins skattlagður eins og annarra fyrirtækja og þar með talinna hinna erlendu flugfélaga.

Hjá öllum flugfélögunum má sjá hlutfall skatta og gjalda af verði og þetta því einfalt að reikna út og bera saman. Þó skal hafa örlítinn fyrirvara á sökum þess að ekki eru innheimtir nákvæmlega sömu skattar alls staðar. Flugfélag Íslands er til dæmis eina flugfélagið sem innheimtir sérstakt kolefnisgjald. Það bætir 600 krónum við flug fram og aftur milli Reykjavíkur og Egilsstaða. Merkilegt nokk þá var kolefnisgjald fellt niður með lögum í lok árs 2012 en er ennþá innheimt hjá flugfélaginu.

Taflan að ofan tekur til flugs SAS milli Kaupmannahafnar og Árósa í Danmörku. Flugs Norwegian milli Oslóar og Bergen í Noregi og milli London og Manchester í Englandi með Virgin Atlantic. Taflan að neðan hins vegar sýnir okkur lægstu verð á þessum sömu flugferðum frá 20. júlí til 27. júlí næstkomandi. Hjá öllum bætt við tösku ef þörf var á og þjónusta því sams konar nema vélar Flugfélags Íslands eru almennt mun minni og þrengra um fólk en hjá hinum þremur. Leitað samtímis hjá öllum aðilum klukkan 15:20 þann þrettánda júlí.

Þó ekki sé um hávísindalegan samanburð að ræða má ljóst vera að væl Flugfélagsmanna þess efnis að álögur séu allt að drepa halda hvorki vatni né vindum.