Ávallt er gaman að lesa um fólk í þessum heimi sem sér heiminn með stærri gleraugum en flestir og gengur lengra en aðrir að koma til móts við fólk og veita það sem sannarlega er góð þjónusta umfram það sem krafist er. Einn slíkur er flugstjóri hjá bandaríska flugfélaginu Frontier.

Löng og leiðinleg bið en enginn fór hungraður frá borði að lokum. Skjáskot twitter

Löng og leiðinleg bið en enginn fór hungraður frá borði að lokum. Skjáskot twitter

Sá stýrði einni vél flugfélagsins á leið frá Washington til Denver nýlega en sökum ofsaveðurs á leiðinni var talið nauðsynlegt að millilenda meðan allra versta veðrið gengi yfir. Farþegar urðu þó að bíða inni í vélinni þann tíma.

Eftir klukkustundar bið um borð gerðist kafteinninn svo brattur að panta einar 70 pizzur á línuna fyrir farþega sína enda hungur farið að gera vart við sig um borð. Vakti það gríðarlega lukku þegar flugþjónar dreifðu svo funheitum pizzusneiðum á mannskapinn. Ekki skemmdi heldur fyrir að húmor var í kafteininum. „Góðir farþegar, þótt flug með Frontier sé ódýrt þá verður það sama ekki sagt um flugstjórann ykkar í dag. Ég hef pantað pizzur fyrir ykkur öll því sama hvað annað er sagt um mig að enginn á mínum vegum skal þjást af hungri.“

Uppátæki flugstjórans komst í fjölmiðla vestanhafs og af ummælum við fréttirnar að ræða hefur Frontier aldeilis bætt fjöðrum í safn sitt fyrir að gera örlítið meira en venjan er.

Til mikillar eftirbreytni enda fátt dapurlegra en bíða klukkustundum saman í sæti sínu í flugvél á jörðu niðri.