Fjórðungur liðsmanna Fararheill hefur lengi haft dálæti á Túnis og undrast stórum hvers vegna ferðir þangað hafa barasta aldrei verið í boði héðan af klakanum. 

Eðalgististaðir og strendur en lítið af fólki. Sem er yndislegt og öllu ódýrara en ella. Mynd fotokunde

Eðalgististaðir og strendur en lítið af fólki. Sem er yndislegt og öllu ódýrara en ella. Mynd fotokunde

Merkilegt sökum þess að strendur í þessu örlitla landi eru hundrað prósent heimsklassa, heimafólk er vinsamlegra en gengur og gerist í annars þokkalega vinsamlegri Norður-Afríku og verðlag 30 til 50 prósentum lægra en á Spáni eða Ítalíu. Flug hingað er svona 25 mínútnum lengra en til Rómar eða Napolí fyrir utan að Túnis þarf mun meira á peningum okkar að halda en feitlagnir Ítalir og Spánverjar.

Allt eru þetta fínar ástæður en kannski er besta ástæðan enn eftir; Túnis, eftir byltinguna sem hér varð þegar ungur götusali kveikti í sjálfum sér til að mótmæla harðræði stjórnvalda, er í sárum og fáir eru að sýna fólkinu hér mikla samúð eða veita hjálp.

Túnis er enn sama dásamlega landið og það var þegar tæpar þrjár milljónir Evrópubúa sóluðu sig hér fyrir byltinguna en síðan henni lauk hafa Evrópumenn haldið annað og árið 2013 náðist tæplega að heilla 700 þúsund manns til að koma í heimsókn.

Fararheill hefur heimsótt landið eftir byltingu og það skal fullyrt hér og nú að enginn sem dvelur á strandstöðum Túnis er nokkru nær um að hér var bylting yfirhöfuð. Hér eru enn vinsamlegir götusalar að selja ís og blöðrur, hér sést ekki boltafar á golfvöllum landsins og þaðan af síður er heimafólk að hafa byltinguna eða eftirmála hennar á vörum.

Það er, sem sagt, allt við sama heygarðshornið í Hammamet, Djerba eða Sousse  gagnvart erlendu ferðafólki nú og það var áður angi af byltingu hafði skotið rótum.

Allt ofangreint er vonandi góður inngangur að því sem við teljum vera allþokkalegt ferðatilboð til Túnis næstu mánuðina en ferðaskrifstofan þýska Holidaycheck er að bjóða töluvert af ferðum til Túnis á kostakjörum. Þar er um að ræða vikuferðir, sem má framlengja sé vilji til, með öllu inniföldu á fjögurra eða fimm stjörnu hótelum á bestu stöðum allt niður í 75 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman.

Nú þegar Wow Air er enn að bjóða fargjöld niður í 10.895 krónur aðra leiðina til Þýskalands frameftir hausti er þjóðráð að sameina þessa tvo pósta. Wow Air til Þýskalands og þaðan yfir til Túnis og sömu leið til baka. Ein kvöldstund dugar til að setja pakkann saman og hjón eða par dúlla sér því við Miðjarðarhafströnd á fínum en öðruvísi stað vel undir tvö hundruð þúsund krónum.

Það köllum við hið besta mál. Öll tilboð Holidaycheck til Túnis hér.