Vissir þú að írska borgin Limerick er meðal hættulegustu borga Evrópu? Hvað með Glasgow, Nottingham eða Malmö? Í ljós kemur að allar ofangreindar borgir komast á topp tíu lista yfir hættulegustu borgir Evrópu fyrir ferðafólk.

Hin indæla írska borg Limerick er meðal þeirra hættulegustu í Evrópu samkvæmt lista TopTen. Mynd Willie Angus
Að minnsta kosti ef marka má vefmiðillinn TopTens.com sem heldur utan um alls kyns tölfræði en á þeim vef er nú kosið um þær borgir sem ekki er með öllu óhætt að heimsækja. Kemur listinn mjög á óvart.
Við birtum listann en með þeim fyrirvara þó að þrátt fyrir mikla leit og eftirgrennslan tókst okkur ekki að fá upplýsingar um hvernig listinn er tilkominn upphaflega. Hvort hann er eingöngu byggður á einkunnagjöf lesenda eða hvort að baki liggja opinberar upplýsingar.
Það verður þó að segjast að ritstjórn Fararheill fyrir sitt leyti er mjög hissa á hversu hátt ýmsar borgir hér mælast. Líklega ekki sterk ástæða til að taka þennan lista mjög trúanlegan.
- MOSKVA
- SARAJEVO
- BELGRAD
- TIRANA
- GLASGOW
- BÚKAREST
- MALMÖ
- LIMERICK
- MARSEILLE
- NOTTINGHAM
- NAPOLÍ
- LONDON
- SOFÍA
- PRISTÍNA
- BRUSSEL
- ISTANBÚL
- DUBLIN
- MANCHESTER
- ROTTERDAM
- BRADFORD
- MADRID







