Þrátt fyrir alla sína markaðsfræðinga, greiningardeildir og neytendakannanir hægri, vinstri ætla Icelandair og Wow Air seint að átta sig á að fyrir almenning eru ferðalög dýr og flestir gera sér far um að leita að hagstæðasta verði jafnvel áður en tími eða áfangastaður er valinn.
Allnokkrar flugleitarvélar gera fólki kleift að fletta upp lægstu fargjöldum á ákveðnu tímabili og jafnvel töluvert langt fram í tímann en enginn er fljótari að því en flugleit Google, Google Flight Explorer.
Þá flugleit hefur tæknirisinn smám saman verið að uppfæra og bæta og þó enn sem komist er gagnist hún Íslendingum lítið er tær snilld að leika sér aðeins því hægt er að leita eftir fjölmörgum leiðum.
Það gerðum við og það tók okkur um það bil þrjár sekúndur að finna út lægsta mögulega verð á flugi milli London og Alicante fram að jólum. Samkvæmt Google er allra lægsta verð allra næstu dagana 119$, eða rúmar 13.500 krónur aðra leiðina. Langi fólk til Alicante frá London í desember finnst hins vegar flug alveg niður í 86$, eða 9.700 krónur miðað við miðgengi.
Ástæða þess að þetta nýtist okkur lítt enn sem komið er er einfaldlega sú staðreynd að Google hefur ekki sett Ísland inn í leit sína ennþá en væntanlega kemur að því fyrr en síðar. Þegar þar að kemur þarf ekkert að fletta tugum síða á vef Wow eða Icelandair til að finna allra lægstu fargjöld þeirra flugfélaga. Google sér um það fyrir okkur og vonandi sem fyrst.








