Eitt er það sem ferðaþyrstir ættu ávallt að hafa í huga. Það er sú staðreynd að sérstakar útsölur eða afslættir hjá flugfélögum, hótelum, bílaleigum og öðrum slíkum þjónustuaðilum finnast jafnan ekki á leitarvélum.
Það færist í vöxt hjá þessum aðilum á heimsvísu að bjóða sín allra bestu tilboð aðeins á sínum eigin vef og hvergi annars staðar en hugmyndin með því að draga til sín traffík og næla í fólk til lengri tíma. Það er jú allmikið betri auglýsing en að vera í hópi annarra á leitarvélum.
Lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur um margra ára skeið aldrei leyft leitarvélum að finna sín allra bestu tilboð og aldrei gefið leyfi á sértilboðum. Okkur sýnist easyJet vera farið að leika sama leik. Þar er nú sumarútsala á flugferðum fram í september en leit á þremur flugleitarvélum skilar ekki sama lága verði og við finnum á heimasíðu flugfélagsins.
Það skýrist af því að tilboð easyJet miðast eingöngu við þá sem bóka fyrir tvo. En gott verð er það.








