Það er ekkert nýtt að við hjá Fararheill skoðum hvern krók og kima til að komast ódýrt út í heim. Þörfin á slíku hefur minnkað með tilkomu fleiri lággjaldaflugfélaga til Íslands en engu að síður má alltaf gera betur. Ein forvitnileg leið til viðbótar bætist við vorið 2015.

Kannski einfaldasta leiðin til Mallorca liggi gegnum Færeyjar. skjámynd

Kannski einfaldasta leiðin til Mallorca liggi gegnum Færeyjar. skjámynd

Færeyska flugfélagið Atlantic Airways er aldeilis að taka til í ranni þessa dagana. Ekki aðeins hefur flugfélagið einfaldað verðlista sína heldur og lækkað verð á ferðum sínum og það töluvert.

Síðast en alls ekki síst ætlar flugfélagið að breyta leiðakerfi sínu næsta sumar og með þessu ágæta flugfélagi verður til dæmis hægt að komast lóðbeint til Mallorca, Aberdeen, Bergen og Barcelona svo nokkrar séu nefndar.

Atlantic flýgur auðvitað líka til Íslands og þannig gefst færi að versla við góðfrændur okkar, stoppa stund á fegurri eyjum en þeim íslensku og svo beinustu leið í sólina á Spáni með geðglöðum Færeyingum.

Vissulega er hægt að komast til Mallorca eftir öðrum leiðum og klárlega fyrir lægra verð en ritstjórn Fararheill gleymir ekki að það voru Færeyingar sem fyrstir allra og án allra skuldbindinga hjálpuðu íslensku þjóðinni þegar hér hrundi allt saman árið 2008. Það er geymt en ekki gleymt og fyrir okkar leyti verslum við hiklaust við Færeyinga þó punga þurfi út aðeins hærri upphæðum. Þeir eru alvöru og það besta af öllu er að þeim er mjög hlýtt til Íslands og Íslendinga. Fyrir utan að vera almennt skemmtilegt og lífsglatt fólk.

Sjálfsagt að hafa Atlantic í huga dreymi fólk um Mallorca því engar eru beinar ferðir héðan frá Íslandi og ekki á döfinni að bjóða slíkt eftir því sem Fararheill kemst næst.