Íslensku ferðaskrifstofurnar ætla seint að koma sér inn í nútímann. Enn eitt árið miðast flestöll auglýst verð í bæklingum þeirra og vefauglýsingum við tvo fullorðna og tvö börn. Nema þá sérstaklega að það henti þeim að miða við tvo fullorðna og eitt barn. Og auðvitað ekki í dýrari tilfellum þar sem best er að að auglýsa aðeins verð fyrir tvö fullorðna. 

Ár og aldir eru síðan virtar erlendar ferðaskrifstofur hættu að auglýsa ferðir miðað við kjarnafjölskyldustærð. En ekki á Íslandi.

Ár og aldir eru síðan virtar erlendar ferðaskrifstofur hættu að auglýsa ferðir miðað við kjarnafjölskyldustærð. En ekki á Íslandi.

Í auglýsingum sínum eins og verðlagningu eru íslensku ferðaskrifstofurnar flestar hverjar svo aftarlega á meri í samanburði við það sem gerist og gengur erlendis að skömm er frá að segja.

Nú til dags er óvíða á byggðu bóli að finna þá ferðaskrifstofu sem auglýsir verð á ferðum sínum miðað við fjögurra manna kjarnafjölskyldu. Kjarnafjölskyldu sem verið hefur að deyja drottni sínum undanfarin 20 til 30 ár eða svo. Eða hvað þekkjum við mörg hjón með tvö börn undir sextán ára aldri? Undir tólf ára aldri? Undir tíu ára aldri? Það er nefninlega líka misjafnt hvað ferðaskrifstofunar flokka sem börn og hvað ekki.

Ástæða þessa er augljós; það er hægt að auglýsa mun lægra verð þegar nokkrum börnum er hent með í dæmið. Þá er allt í einu hægt að auglýsa flug og hótel erlendis á 98 þúsund á mann í stað 140 þúsund króna á mann séu aðeins tveir að ferðast. Verst kannski að börnin greiða sjaldnast fyrir herlegheitin.

Fararheill hefur lengi gagnrýnt þetta og kallað blygðunarlaust fals en undir það hefur talsmaður neytenda ekki tekið enn sem komið er.

Sé það ekki fals er það að minnsta kosti siðlaust því eins og við höfum bent ítrekað á eru aðeins 13 þúsund fjölskyldur á Íslandi sem skráðar eru með tvö börn samkvæmt Hagstofu Íslands. Þar flokkast allir börn undir átján ára aldri. Sem merkir að í landinu öllu eru kannski 40 til 50 þúsund manns sem falla undir fjölskylduskilgreininguna „tveir fullorðnir og tvö börn.“

En hér á landi búa yfir 310 þúsund manns. Er ekki út úr korti að kasta ryki í augu fólks með auglýsingum sem eiga við um fimmtán prósent þjóðarinnar? Drífið ykkur inn í nútímann takk.