Íslendingar eru margir undarlegir og ekki síst á það við um lögfræðinga landsins. Fararheill hafði samband við nokkrar lögfræðistofur og forvitnaðist um áhuga þeirra að aðstoða fólk sem lendir í töfum, seinkunum eða niðurfellingu flugs ellegar fær minna út úr ferðalaginu en efni stóðu til. Engin þeirra hafði fyrir að svara erindi okkar.
Sem um leið gerir íslenska lögfræðinga merkilegri en aðra í heiminum sem yfirleitt láta einskis freistað að næla í peninga hvar sem hægt er hvenær sem er. Miðað við þann póst sem við fáum hér á Fararheill er ekki alveg laust við óánægju fólks oft á tíðum vegna ferðalaga.
Þörfin líka klárlega til staðar því bæði flugfélögin íslensku svo og ferðaskrifstofurnar lofa á stundum of vel upp í ermi og geta svo ekki staðið við sitt. Hver kannast ekki við að stórgóða hótelið á Benidorm þar sem enginn var svo friður þar sem verið var að byggja nýja álmu? Eða að fá nákvæmlega enga aðstoð, upplýsingar, mat né kaffi þegar flug tefst um fleiri klukkustundir á erlendum flugvelli. Allt slíkt getur verið bótaskylt í viðbót við það sem farþegar eiga sannarlega rétt á samkvæmt Evrópulögum.
Vissulega er leið til staðar fyrir flug- og ferðafólk sem þykir gert á rétt sinn en þær leiðir geta tekið mánuði að þræla sig gegnum og þar sem upphæðirnar eru oftar en ekki í lægri kantinum þykir mörgum það of mikið vesen.
En það sem okkur kann að þykja of mikið vesen þykir ekkert nema sjálfsagt mál hjá fólki í Evrópu sem alist hefur upp við sterkan neytendarétt. Það er til dæmis ástæða þess að sérstakar lögmannastofur erlendis sinna eingöngu kvörtunum ferðamanna. Og það er gnótt að gera.
Fararheill hefur notað þjónustu eins slíks fyrirtækis og það voru sennilega einföldustu 60 þúsund krónur sem við höfum fengið. Eitt bréf dugði til enda sáraeinfalt að skoða tafir á ferðum langt aftur í tímann nú til dags. Flugfélagið í því tilfelli gerði ekkert annað en greiða og það möglunarlaust á tveimur vikum.
Fyrirtækið sem aðstoðaði okkur í því tilfelli er Refund.me sem við höfum fjallað um áður. Þar er hægt, kunni fólk ensku, á afar einfaldan og fljótlegan hátt að ganga úr skugga um hugsanlegar skaðabótagreiðslur vegna tiltekins flugs. Nægir í flestum tilfellum að tiltaka flugnúmerið og dagsetningu og svar fæst fljótt. Fyrir þjónustuna tekur Refund.me fimmtán prósent þóknun en aðeins ef bætur fást. Það gæti verið betra en bíða mánuðum saman eftir opinberum leiðum.
Varðandi skipulagðar ferðir sem fara forgörðum verður að hafa samband við Neytendastofu svokallaða en hún er eins og aðrar stofnanir íslenskar sem vernda almannahag fjársvelt. En það sakar aldrei að láta á reyna.








