Vart þverfótað fyrir greinum í fjölmiðlum um hvað allt sé nú dúllídúll á klakanum. Efnahagur landsins sé að ná mikilvægu jafnvægi svo allir ættu að vera sáttir við sitt. En ekki við hér hjá Fararheill.

Jafnvægi í ríkisrekstri og heimarekstri? Jamm, ef þú hundsar að krónan hefur fallið feitt gagnvart skitinni evru á mettíma

Fjórtándi júní 2019. Veðrið leikur við hvern sinn fingur og við með. Wow Air heyrir sögunni til en allt annað þokkalega á pari svona við fyrstu sýn. Feitar raðir í kælinn hjá „kjötmeisturum” Krónunnar og fleiri partí ráðgerð þetta sumarið en elstu menn muna.

Gott og blessað. Helmingur þjóðarinnar er jú við vitleysismörk eða heilaþveginn og pælir ekkert í engu. Sem er stór mínus nú þegar ein helvítis evra kostar jafn mikið og hún gerði í byrjun árs 2016 og 30% meira en hún gerði um þetta leytið árið 2017!!!

Allt í Evrópu er, með öðrum orðum, 30 prósentum DÝRARA en það var fyrir sléttum tveimur árum síðan. Það auðvitað príma frammistaða Seðlabanka Íslands og íslenskra stjórnvalda. Fátt betra en fella gengi krónunnar um þriðjung og tala opinberlega um bullandi sókn og dúllerí…

Segir vissulega sitt um þá hámenntuðu „fræðinga” sem leggja seðlabankastjóra og fjármálaráðherra til visku sína. Þegnar hvaða lands nokkurs staðar í heimi sætta sig við 30 prósenta fall gjaldmiðilsins á 24 mánuðum og fagna þeim áfanga með móhító í hjólhýsinu á Laugarvatni, veiðileyfum í Langá eða með því að sleppa því að kjósa í kosningum til Alþingis?

Engir nema við!