Það er nú vægast sagt hræðilegt þegar þjónusta flugfélags sem kennir sig við nafn landsins er svo léleg að fólk gefur skít í Ísland í þokkabót.
Það er einmitt það sem einn aðili skrifar á vef flugvefsins Skytrax eftir hræðilega reynslu af flugi Icelandair frá Edmonton í Kanada en þangað hefur flugfélagið nýhafið reglulegt áætlunarflug.
Sök sér að einn aðili sé fúll á móti en af þeim tveimur sem gefið hafa umsögn um ferðir flugfélagsins frá Edmonton hingað til hafa báðir verið arfafúlir.
Gríðarleg 26 stunda töf varð á flugi beggja aðila samkvæmt umsögnunum en hvorugur aðilinn mun aftur fljúga með Icelandair né mæla með þeim.
Ekki alveg byrjunin sem vonast var eftir kannski en á hinn bóginn má kannski segja að fall sér Fararheill. Kannski…










