Ferðavefur Túrista hefur farið mikinn að undanförnu að dásama lystisemdir borgarinnar Vancouver í Kanada en þangað hefur Icelandair flug innan tíðar. Ekki er ljóst hvort mikil og jákvæð umfjöllun túristans er greidd af Icelandair en í öllu falli kemur hvergi fram hversu rándýrt er að heimsækja borgina.
Langi mann og annan að fljúga til Vancouver í sumar og heim aftur er allra lægsta verð sem Icelandair býður á vef sínum nú 117.690 krónur á haus. Það á við um dagsetningar í júní en sjái fólk fyrir sér júlí sem besta mánuðinn til ferðalaga kemst einstaklingur ódýrast fram og aftur til Vancouver fyrir 147.890 krónur. Besta verð á vef Icelandair í ágúst kostar manninn 133.490 krónur. Það kostar sem sagt par eða hjón að lágmarki rúmar 235 þúsund krónur að heimsækja Vancouver og þá á eftir að greiða fyrir gistingu og annað.
Athygli vekur að frá Bretlandi er hins vegar hægt að fljúga fram og aftur til Vancouver í júní og júlí niður í 110 þúsund krónur á mann að því er fram kemur á leitarvél Dohop.
Það er æði athyglisvert því flugtíminn frá London til Vancouver er samtals rúmlega fimm klukkustundum lengri en frá Keflavík. Sem segir allt sem segja þarf um gríðarlega álagningu Icelandair.
Fararheill mælir með að setja Vancouver á ís þetta sumarið og bóka svo ferð næsta sumar með góðum fyrirvara og eigi síðar en um áramótin. Að öllu eðlilegu ætti það að spara drjúgan skilding miðað við verð það sem Icelandair heimtar núna fyrir flugið.
Sé hins vegar einbeittur vilji til brottfarar er hægt að lágmarka kostnaðinn með því að bóka hótel á bestu hótelbókunarvél heims hér að neðan.








