Það er auðvelt að eignast vini ef maður veifar einhverju ókeypis framan í fólk. Ný flugbókunarvél í stíl við Dohop fer í loftið innan tíðar og hefur þegar tekist að verða sér úti um fleiri þúsund „læk“ á fésbókinni.
Um er að ræða íslenska útgáfu hins danska vefs Ticket2Travel sem er ekkert annað en hótel og flugbókunarvefur. Sá danski hefur verið rekinn um hríð og ekki vakið neina heimsathygli. Öðru nær; sá hefur ekki einu sinni náð að rokka meðal Dana.
En 200 þúsund króna inneign á ferð nægir til að Íslendingar í þúsundatali eru nú „vinir“ ticket2travel.is sem opnar strax eftir páska en að baki vefnum stendur sami aðili og rekur ferðaskrifstofuna Ferðin.is.
Að því er fram kemur á þessum nýja miðli getur sá sem bókar fleiri en eitt flug gegnum ticket2travel notið tryggingaverndar jafnvel þó viðkomandi missi af seinna flugi í bókun erlendis. Með öðrum orðum; sá sem ætlar til Feneyja og bókar frá Íslandi til Englands og þaðan áfram til Feneyja nýtur sömu verndar og hefðbundnar ferðaskrifstofur bjóða. Falli flug niður eða eitthvað bjáti á er fólk tryggt fyrir.
Þetta er hið besta mál enda langstærsta vandamálið við að skipuleggja eigin ferðalög að bregði eitthvað út af stendur fólk oftast nær uppi með tapið sjálft.
Gallinn hins vegar sá að þetta þýðir að bóka verður ÖLL flug með ticket2travel og eins og Fararheill hefur bent á varðandi Dohop sem einnig býður slíkt er ekki endilega víst að ticket2travel sé að bjóða allra lægsta verð hverju sinni. Reyndar er ólíklegt að svo sé. Fleiri milliliðir þýða hundrað prósent meiri kostnað fyrir viðskiptavininn.
Lausleg úttekt á hinum danska ticket2travel leiðir í ljós að ekki finnast flug Primera Air til Billund svo dæmi sé tekið. Né heldur finnast flug Vueling milli Reykjavíkur og Barcelona. Ódýrasta flug til Bristol segir ticket2travel vera með Icelandair til Amsterdam og svo þaðan með öðru flugfélagi til Bristol. Algjörlega galið þegar langódýrasta leiðin og sú eina í beinu flugi er með easyJet.
Sé sá íslenski eitthvað í takt við það sem sá danski er að bjóða er ticket2travel ekki að gera mikið fyrir íslenska ferðamenn.








