Hið frábæra við samfélagsmiðla eins og Fararheill hefur fjallað um áður er sú staðreynd að þar gefst almenningi færi á að koma á framfæri kvörtunum sínum eins og hóli og það fyrir allra augum.
Áður fyrr var engin leið að komast að hvort ferðaþjónustufyrirtæki væru að vinna vinnuna sína. Að frátöldum stöku greinum í dagblöðum komust kvartanir farþega ekki fyrir almenningssjónir heldur þvert á móti.
Nú er öld önnur sem betur fer fyrir okkur öll. Nú má fá glugga inn í hversu vel eða illa fyrirtæki eru að standa sig gegnum samfélagsmiðlana. Og þar er nokkuð áberandi skortur á þjónustu af hálfu Vita ferða, dótturfyrirtækis Icelandair. Sama Icelandair og hefur mokað inn tugmilljóna króna hagnaði síðustu árin.
Í það minnsta er ekki annað ráðið í þær athugasemdir sem finnast á fésbókarvef Vita frá áramótum eins og sjá má hér að neðan.
Þetta síðasttalda er nokkuð merkilegt. Til að ná í fararstjóra á vinsælasta stað Vita ferða þarf að senda póst!!!! Þarf ekki einhver skörungur að fara að halda þjónustunámskeið fyrir liðið. Fyrir utan að lista farsímanúmer fararstjóra á áberandi stað. Þeir eru jú til þess að aðstoða hvenær og hvar sem er í ferðum.















