Svo virðist sem jólin komi hraðar og hraðar eftir því sem árin færast yfir. Breytir þá engu hvort fólk hafi sett sér það áramótaheit árið áður að taka lífinu rólegar, njóta í stað þess að keppa sig í gröfina öllum stundum.
Þó æði margt sé dásamlegt við jólin sjálf þá er ekkert dásamlegt við aðdraganda jólanna fyrir fólk yfir tólf ára aldri. Dimmasti mánuður ársins, verslanir troðnar og dýrar, frostið nístir inn að beini, hálka og slabb á götum og fáir hafa tíma til eins né neins og allra síst að njóta og líta inn á við.
Það er oft á þeim tímapunkti sem suðræn nöfn á borð við Maracaibo, Antigua, Fort Lauderdale, Barbados, Jómfrúreyjar, Aruba og Bahamas hafa hvað mest aðdráttarafl í huganum. Yndislegt hitastig, helsta erfiðið er að lyfta glasinu og íslensku jólin eins fjarri lagi og jólasveinaverksmiðjan á Norðurpólnum.
Að sama skapi getur verið fúlt og ergilegt að missa af áramótunum á Íslandinu. Jólastressið sjálft að mestu horfið og ekki meiri byrðar á fólki en elda og borða góðan mat áður en mannskapurinn gleðst saman yfir brennum, skaupinu og ljúfum stundum þegar klukkan slær miðnætti.
Breska ferðaskrifstofan Cruise Nation er oft á tíðum með afar safarík tilboð á boðstólnum en sú sérhæfir sig eingöngu í siglingum um heimsins höf og tekst að bjóða einna vænlegustu ferðirnar á vænlegasta verðinu aftur og aftur.
Nú eru þeir að bjóða hreint yndislega þriggja vikna siglingu í desember næstkomandi á hinu nýlega lúxusskipi Royal Princess um karabíska hafið frá 8. desember. Það þýðir að meðan þorri landsmanna staulast í slabbinu hér heima í örvæntingarfullri leit að gjöfum og öðum nauðsynjum fyrir aðfanga- og jóladag mökkölvuð af stressi gætir þú A) farið nakin í hestahlaup á ströndinni í Maracaibo B) skálað í dýrindis rauðvíni við makann á svölum káetunnar á níundu hæð með útsýn yfir Aruba C) synt með risaskjaldbökum í St.Thomas D) uppfyllt gamlan draum um að læra merengue dansinn og það á dekki skipsins D) uppfyllt það markmið að prófa alla átta þúsund barina um borð í umræddu skipi eða E) allt þetta og miklu meira til.
Ekkert slæmt við þetta. Ekki er heldur neitt slæmt við að flug frá London er innifalið sem og gisting tvær nætur í þeim alveg ágæta strandbæ Fort Lauderdale í Flórída.
Verðmiðinn? Réttar 300 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman í innri káetu. Auðvitað viljum við káetu með svölum og í því tilfelli hækkar verðið í 378 þúsund krónur alls með flugi til og frá Bretlandi. Með svo góðum fyrirvara er hægt að fá flug til og frá London frá Keflavík fyrir 30 þúsund á kjaft og samtals kostnaður á manninn því kringum 400 þúsund krónur. Hver dagur í þessu ferðalagi kostar manninn um 18 þúsund krónur.
Kannski finnst þér þetta vera algjört okur og vissulega er þetta ekki gefið en berðu þetta saman við þau siglingatilboð sem stærri innlendar ferðaskrifstofur eru að bjóða. Ellefu nátta sigling Vita ferða nú síðastliðinn febrúar um karabíska hafið með svölum kostaði 460 þúsund krónur á mann og seldist upp til agna. Tæplega helmingi styttri ferð og sú ferð kostaði manninn hvern dag rúmar 41 þúsund krónur.
Allt um tilboðið hér og hafið endilega samband, fararheill@fararheill.is, ef við getum aðstoðað með eitthvað.








