Tíminn er núna ætlir þú og vinir eða vandamenn að upplifa Októberfest í München í Þýskalandi án þess að kaupa þurfi slíka ferð á afborgunum næstu sex árin.

Ef njóta á Októberfest þetta árið eru að verða síðustu forvöð án þess að setja sig á hausinn.

Ef njóta á Októberfest þetta árið eru að verða síðustu forvöð án þess að setja sig á hausinn.

Með því eigum við við að hægt er að bóka ódýr fargjöld til og frá ennþá með Icelandair í beinu flugi ella gegnum aðra aðila því almennt er fólk með hugann við sumarleyfisferðir en ekki haustferðir. Hjá Icelandair þessa stundina finnst flug út þann 17. september svo dæmi sé tekið á 21.930 krónur og heim aftur 2. október fyrir 23.660 krónur.

Flugfélagið gætir þess auðvitað vel að enginn komist á milli akkurat meðan á hátíðinni stendur á slíku verði. Sjálf hátíðahöldin þetta árið hefjast þann 20. september og lýkur Októberfest þann 5. október en í flestum tilvikum hafa jafnvel þyrstustu menn fengið sig fullsadda eftir tæpa viku. Fyrir flug þann 21. og heim aftur þann 27. september fást flug á rúmar 54 þúsund krónur á mann.

Annars er það yfirleitt ekki flugið sem er dýrasti pakkinn yfir þennan tíma. Það er gisting því takmarkaður fjöldi gististaða er í göngufæri frá hátíðarsvæðinu og oft á tíðum er jafnvel göngufærið of langt sökum drykkju út í eitt. Að sama skapi getur bið eftir leigubíl eða strætisvögnum verið löng og leiðinleg.

Við getum orðað það sem svo að jafnvel bara sæmileg hótel miðsvæðis heimta 40 til 70 þúsund krónur fyrir hverja einustu nótt og það verð mun bara hækka enn meira héðan í frá.