Það er vandlifað í þessum heimi. Í aðra röndina er yfirleitt vænlegt að bóka flug fram og aftur hjá einu og sama flugfélaginu en í hina röndina er mjög oft hægt að fá allra lægstu flugfargjöldin hjá mismunandi flugfélögum sé samkeppni á þeirri leið á annað borð.

Það er dálítið upp og niður hvort hagkvæmara er að bóka flug fram og aftur með sama flugfélagi eður ei

Það er dálítið upp og niður hvort hagkvæmara er að bóka flug fram og aftur með sama flugfélagi eður ei

Það er í seinni tilfellunum sérstaklega sem flugleitarvélar koma í góðar þarfir. Eins og sjá má á meðfylgjandi dæmum þar sem leitað var að flugi fram og aftur til Berlínar á nokkrum dagsetningum í júní er hægt að spara nokkra þúsundkalla á því að bóka hjá tveimur flugfélögum í stað þess að bóka fram og aftur hjá því sama.

Hvort það vegur upp á móti þægindunum að bóka allt klabbið á sama stað skal ósagt látið en í ýktustu dæmunum til Berlínar í júní var mestur munur rétt tæplega tíu þúsund krónur að bóka allt hjá Wow Air eða láta sig hafa að leita uppi og bóka sitt hvort flugið. Fólk verður að meta hvort sá tími sem í leit fer er þess virði.

Leit á Dohop sýnir glögglega að billegast til og frá Berlín 6. til 15. júní er að panta aðra leið með Wow Air en til baka með Air Berlin. Slíkt sparar einstaklingi um níu þúsund krónur umfram það að bóka báðar leiðir með Wow Air.

sambi33

Sama er uppi á teningnum sé notast við leitarvél Momondo dagana 13. til 19. júní til Berlínar. Í þeim tilvikum kemur best út að notast við tvö flugfélag eins og sjá má hér að neðan.

momsam

Það er svo sem lítið leyndarmál við þessa stöðu. Mörg flugfélög leika þann leik að auglýsa aðra leið út afar ódýrt og heilla þannig lesendur. En langflestir þurfa jú flug fram og aftur og þá kemst fólk fljótt að því að flugið til baka er nær undantekningarlaust dýrara og stundum mun dýrara.

Með því að kanna flug með tveimur aðilum í stað eins og hins sama erum við neytendur sem sagt að leika á það kerfi og oft spara okkur allnokkrar upphæðir fyrir þá fyrirhöfn.