Fyrr í vikunni fjölluðum við um hvort hagkvæmara væri að leigja sér heila villu eða íbúð í Alicante, Torrevieja, Cabo Roig og nágrenni gegnum íbúðaleigur en að bóka gott hótel. En fleiri kostir eru í boði.

Tæplega 200 íbúðir og hús til leigu í Torrevieja einni saman á Airbnb

Tæplega 200 íbúðir og hús til leigu í Torrevieja einni saman á Airbnb

Íbúðaleiguvefurinn Airbnb, sá vinsælasti í veröldinni, er vitaskuld að bjóða íbúðir og hús hér í Alicante og nágrenni líka eins og annars staðar í veröldinni.

Svo sem ekkert steypt í stein að sú þjónusta sé endilega ódýrari en að leigja íbúð gegnum hefðbundna íbúðaleigu en aldrei sakar að skoða hlutina. Munurinn á Airbnb og hefðbundnum íbúðaleigum er sá að hjá þeim fyrrnefnda er hver sem er að leigja meðan íbúðaleigur eru sjaldan að bjóða húsnæði í miður góðu ástandi eins og getur verið raunin hjá Airbnb.

Í ljós kemur að á Torrevieja svæðinu vinsæla eru um 340 íbúðir til leigu á vef Airbnb í sumar. Það er dágóður fjöldi og það sem meira er þar er allt frá kompum þar sem fara þarf út til að skipta um skoðun og upp í sams konar villur og finnast rándýrar á almennum leigumiðlunum. Einn helstu plúsinn við fasteignirnar á Airbnb er að þær eru margar hverjar í hefðbundnum íbúðahverfum en ekki lengst í steindauðum úthverfum eins og oft vill vera raunin með stórar eignir útlendinga.

Fararheill kafaði ekki mjög djúpt í verðlag hjá Airbnb en heilt yfir virðist verð ekki vera áberandi lægra en gengur og gerist. En þó sjálfsagt fyrir áhugasama að fletta og gera samanburð. Hver veit nema það skili betra fríi en ella. Vefur Airbnb hér.

Sjálfsagt er líka að kíkja á bókunarvef Fararheill. Þar eru ekki bara hótel í Alicante heldur og annars konar gisting af ýmsu tagi og alltaf á lægsta mögulega verði.