Bardagahetjan Gunnar Nelson stígur loks á stokk á nýjan leik í næsta mánuði eftir margra mánaða fjarveru vegna meiðsla. Tveir Íslendingar í London segjast geta útvegað öllum sem vilja miða á viðburðinn.
Þar er um að ræða þá tvo einstaklinga sem reka vefsíðuna 2 do in London og þar segjast þeir félagar geta útvegað miða á hvað sem helst í bresku höfuðborginni og reyndar víðar um landið.
Lítið kemur fram á vef þeirra hvort þeir hafa leyfi til starfseminnar eða tryggingar ef eitthvað bjátar á en kannski í lagi að senda þeim póst og forvitnast hyggist fólk lyfta sér upp í London.
Í öllu falli er varla leiðinlegt að sjá okkar mann berja andstæðing sinn í gólfið í næsta mánuði og halda svo út á lífið í gleðskap.








