Forsvarsmenn Wow Air hafa ákveðið að hætta við fyrirhugað flug til og frá Bandaríkjunum eins og til stóð. Reyna skal að nýju sumarið 2015.

Búið spil hjá Wow Air í bili. Ekkert Ameríkuflug 2014. Mynd Aero Icarus

Búið spil hjá Wow Air í bili. Ekkert Ameríkuflug 2014. Mynd Aero Icarus

Fréttablaðið greinir frá þessu og er ástæðan að flugfélagið fær ekki úthlutað þeim flugtímum á Keflavíkurflugvelli sem sóst var eftir. Falla því niður allar ferðir til Boston auk þess sem flug til Stokkhólms verður einnig fyrir hnífnum.

Forstjóri Wow Air, Skúli Mogensen, segist afar vonsvikinn með þessar lyktir og útilokar ekki að sækja rétt sinn fyrir dómstólum en fyrirtækið hefur þegar lagt út í verulegar fjárfestingar vegna Ameríkuflugs.