Stórtíðindi áttu sér stað í liðnum mánuði. Þá loksins fékk flugleitarvefur leyfi til að birta upplýsingar um lággjaldaflugfélagið Ryanair.

Loks hægt að finna flug með Ryanair á flugleitarvél. Mynd Paolo Margari

Loks hægt að finna flug með Ryanair á flugleitarvél. Mynd Paolo Margari

Kannski ypptir þú öxlum núna og spyrð hvað það komi okkur við. Þó eigi sé gott að alhæfa nokkurn skapaðan hlut gæti vel verið að þessi skráning gjörbreyti hegðun okkar sem kjósum að ferðast á eigin spýtur.

Írska flugfélagið gerði nefninlega díl við Google. Lágfargjaldarisinn sængar með leitarvélarrisanum. Flugleit Google, Google flight search, er eina flugleitarvélin sem gefur upp flug og verð Ryanair sem þrátt fyrir mikið neikvætt umtal er engu að síður eitt hið stærsta í Evrópu og stækkar ár frá ári.

Vissulega flýgur Ryanair ekki hingað ennþá en til að gefa hugmynd um hvað það flugfélag stendur fyrir þá ætti að nægja að nefna að á Bretlandseyjum er Ryanair oft að bjóða hagstæðari flugfargjöld en easyJet. Og það ætti landinn að vera farinn að átta sig á að easyJet býður almennt hræbillega flugmiða sé nokkur fyrirvari á ferð.

Fræðingar í flugmálum eru nokkuð sammála um að hjónaband Ryanair og Google geti haft grafalvarleg áhrif á aðrar flugleitarvélar eins og Kayak, Expedia og hið íslenska Dohop í framtíðinni. Einfaldlega vegna þess að flugleit sem ekki getur sýnt flug og verð allra flugfélaga er að veita lamaða þjónustu. Eins og Fararheill hefur reyndar sýnt gagnvart Dohop sem ekki er með samninga við Primera Air sem hingað flýgur og býður oft mun betur en aðrir.