Það er ávallt til eftirbreytni þegar ferðaskrifstofur bjóða reglulega sérkjör og afslætti á ferðum sem ekki seljast vel. Finna má sérstaka tilboðssíður nánast hjá öllum ferðaþjónustuaðilum erlendis og ein og ein innlend ferðaskrifstofa hefur góðu heilli tekið þetta upp líka.

Enn engar ferðir á „besta“ verði hjá ferðaskrifstofunni Nazar

Enn engar ferðir á „besta“ verði hjá ferðaskrifstofunni Nazar

Ein þeirra er nýjasta ferðaskrifstofan í landinu, Nazar, sem sérhæfir sig í ferðalögum til Tyrklands og Antalya sérstaklega. Ýmis ágæt tilboð þar á bæ og sérstakur tilboðshnappur mjög áberandi.

En þar kemur fólk að tómum kofa eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Þrátt fyrir að vera orðin rúmlega eins mánaðar gömul er enn bið á „allra bestu“ tilboðum þeirra ef marka má heimasíðuna. Það er því ráð að hinkra með kaup þangað til ljóst er hvað flokkast sem allra bestu tilboðin og hversu mikið betri þau eru frá hefðbundnu verði ferða þeirra.