Ferðaskrifstofan Heimsferðir byrjar árið með látum. Ekki aðeins er sumardagskráin kynnt strax á nýju ári heldur og er ferðaskrifstofan að bjóða allra ódýrustu ferðirnar til Billund og Kaupmannahafnar.
Þar gerir Heimsferðir sér lítið fyrir og sekkur tilboðum Wow Air og Icelandair á þessum leiðum til Danmerkur og bjóða flug aðra leið með sköttum og gjöldum og 20 kílóa tösku fyrir 9.900 krónur.
Ruglgott verð jafnvel þó þessi fargjöld séu aðeins í boði fram í maí. Til samanburðar kostar flug aðra leiðina með flugfélögunum til Kaupmannahafnar í vetur og vor kringum sextán og tuttugu þúsund krónur með einni tösku.
Nóg er eftir af sætum samkvæmt úttekt Fararheill þegar þetta er skrifað en vænlegra að hinkra ekki of lengi. Sá tapar sem hikar eins og máltækið segir.








