Sé fólk með klárar hugmyndir hvert eigi að halda í vor eða sumar er hægt að slá tvær flugur í einu höggi þessa stundina og ferðast með allra hagkvæmasta hætti þegar líða fer að sumri.

Nú er gott tækifæri fyrir ódýrt frí í vor eða snemmsumars

Nú er gott tækifæri fyrir ódýrt frí í vor eða snemmsumars

Flugfélagið Wow Air auglýsir í dag tilboðsverð á flugi til og frá London, Kaupmannahöfn, Amsterdam og fleiri staða og fæst flug aðra leið á 13.800 krónur án farangurs í maí og júní.

Svo skemmtilega vill til að easyJet er líka með fjögurra daga tilboð þessa stundina og það frá London til dæmis allt fram í júlí. Þar veitir það flugfélag aukalegan 20 prósenta afslátt ofan á almenn fargjöld sín sem oftar en ekki eru hræbilleg.

Sniðugir gætu því flogið með Wow Air til Gatwick í júní, haldið áfram til Barcelóna með easyJet þaðan og sömu leið til baka viku síðar og greitt fyrir alls tæpar 44 þúsund krónur. Það er um 30 þúsund króna lægra verð en beint flug með Wow Air til Barcelóna í sama mánuði. Og Barcelóna er aðeins einn af fjölmörgum áfangastöðum easyJet frá Gatwick.

Wow Air hér og easyJet hér.