Fyrr sögðum við frá frábærum flugtilboðum ferðaskrifstofunnar Heimsferðir til Billund og Kaupmannahafnar fram á vorið. Þangað komist til beggja staða með eina væna tösku fyrir 9.900 krónur. En það var ekki bara Danmörk sem við höfum í huga þegar við töluðum um frábært tilboð.

Ýmis fín flugtilboð og pakkaferðir eru í boði frá Billund og Kaupmannahöfn

Ýmis fín flugtilboð og pakkaferðir eru í boði frá Billund og Kaupmannahöfn

Eins og lesendur Fararheill vita erum við miklir talsmenn þess að gera verðsamanburð á flugi og ferðum og við kjósum heldur að millilenda og eyða stundarkorni í flugstöð en fljúga alla leið í rykk ef það sparar tugi þúsunda króna.

Og reyndin er sú að bæði frá Kastrup í Kaupmannahöfn og Billund eru allmargir flugrekendur að bjóða ferðir og það á botnverði. Dæmi um þetta er að frá Billund er komist til Malaga á Spáni aðra leið fyrir 13.500 krónur tæpar, 18.300 krónur koma einstaklingi aðra leiðina til Faro í Portúgal og báðar leiðir til Hurghada við Rauðahafið í boði fyrir rétt tæpar 60 þúsund krónur íslenskar.

Frá Köben er flug til Barcelóna í boði frá 14.400 krónum og fyrir 8.400 krónur kemst manneskja alla leið til Lissabon héðan.

Ef við tökum aðeins mið af tilboðinu til Lissabon þá er komist þangað frá Íslandi með millilendingu í Köben og heim aftur fyrir 36.700 krónur eða svo í heildina plús farangursgjald frá Köben til Lissabon og til baka.

Slíkt köllum við snilld. Og síðan hvenær hefur þriggja stunda dvöl á Kastrup eyðilagt nokkurn mann?